Uppbyggingarsjóður úthlutar 100 milljónum

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar miðar að því að bæta samkeppnishæfni, búsetuskilyrði og aðdráttarafl Eyjafjarðarsvæðisins. Þessum markmiðum hyggst félagið

Uppbyggingarsjóður úthlutar 100 milljónum

1. febrúar, úthlutaði Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra 100 milljónum króna til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar á starfssvæði Eyþings. 

Sjóðurinn er samkeppnissjóður og veitir verkefnastyrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála.  Hann er hluti af samningi milli Eyþings og ríkisins um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019. 

Uppbyggingarsjóði bárust samtals 133 umsóknir, þar af 51 til atvinnuþróunar og nýsköpunar og 82 til menningar. 

Uppbyggingarsjóður samþykkti að veita 85 verkefnum styrkvilyrði að upphæð 100 mkr. Samtals var sótt um rúmlega 271 mkr.

Yfirlit yfir styrkhafa má finna hér


Svæði

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar

     |  
  Sími:  |  kt.
  Netfang: 

Fréttabréf

Skráður þig til að fá fréttabréf okkar sent í tölvupósti.