Kláfur á tind Hlíðarfjalls?

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar miðar að því að bæta samkeppnishæfni, búsetuskilyrði og aðdráttarafl Eyjafjarðarsvæðisins. Þessum markmiðum hyggst félagið

Kláfur á tind Hlíðarfjalls?

 

Í gær var undirritaður í húsakynnum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar samningur um stofnun undirbúningsfélagsins "Hlíðarfjall - alla leið" en að félaginu standa Sannir Landvættir, Íslensk Verðbréf, Yrki Arkitektar, Akureyrarbær, Verkís og Umsýslufélagið Verðandi. Hópurinn hefur það að markmiði að Hlíðarfjall bjóði upp á víðtæka möguleika til útivistar og afþreyingar allt árið um kring.

Hópurinn var myndaður í kjölfar þess að Akureyrarbær fól Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér rekstur og uppbyggingu skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli með það að markmiði að auka þjónustu við bæjarbúa, íþróttaiðkendur og ferðamenn.

Tillaga hópsins byggir á að taka allt Hlíðarfjallssvæðið í sína umsjá næstu 35-40 árin, byggja það upp, markaðssetja og reka með hagsmuni sem flestra að leiðarljósi. Rík áhersla er lögð á að svæðið þjóni eins breiðum hópi samfélagsins og kostur er og tryggt verði gott aðgengi fyrir alla að Hlíðarfjalli sem heilsárs útivistarparadís. Haft verður víðtækt samráð við íþrótta- og útivistarfélög sem áhuga hafa á að nýta þá aðstöðu sem fjallið býður upp á.

Í tillögunni er meðal annars gert ráð fyrir að opnað verði fyrir aðgengi upp á topp fjallsins með kláfi og öllum þannig gert kleift að njóta svæðisins. Aðstaða fyrir gesti og íþróttafélög sem sækja svæðið heim verður stórbætt. Vernd náttúru Hlíðarfjalls og aðliggjandi svæða verður í fyrirrúmi og fullt tillit tekið til vatnsverndarsvæða er umlykja það.

Stýrihópur á vegum stofnaðila hefur verið settur á laggirnar. Hópurinn vinnur að málinu og ræðst á næstu vikum í ítarlega og nauðsynlega greiningarvinnu á ástandi svæðisins, húsa- og tækjakosti þess ásamt greiningu á rekstarforsendum og hugsanlegri fjármögnun.

Á næstu vikum mun stýrihópurinn eiga fundi með hugsanlegum samstarfsaðilum og fjárfestum. Mikill metnaður er lagður í að eiga gott samstarf við alla sem nota svæðið og opna möguleika fyrir þá sem hafa hug á að nýta það með nýjum hætti.


Svæði

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar

     |  
  Sími:  |  kt.
  Netfang: 

Fréttabréf

Skráður þig til að fá fréttabréf okkar sent í tölvupósti.