21. júní 2016
195. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar,
fimmtudaginn 9. Júní 2016 , Menningarhúsinu Hofi
Fundarmenn:
Stjórnarmenn: Njáll Trausti Friðbertsson, Unnar Jónsson (formaður), Snorri Finnlaugsson, Jóhanna Dögg Stefánsdóttir og Steinunn María Sveinsdóttir.
Starfsmenn AFE: Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri og Elva Gunnlaugsdóttir (ritaði fundargerð).
______________________________
Fundur settur kl. 14.40
1. Auglýsa eftir nýjum framkvæmdastjóra
Samkvæmt samþykktum félagsins er stjórn falið að ráða framkvæmdastjóra, stjórn veitir Unnari og Steinunni heimild til að auglýsa eftir nýjum framkvæmdastjóra sem fyrst.
Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 14.50