Atvinnuţróunarfélag Eyjafjarđar
Það er komin SPAM-sía á bloggið. Núna geta róbótar ekki dælt inn efni nema kunna eitthvað í íslensku og stærðfræði.

 

Atvinnuţróunarfélag Eyjafjarđar E-mailE-mail  

Fréttir

  1-20 af 20  
TímiDagurGúppaFrétt
13:02 07. sep. 2010   AFE
Vaxey óskar eftir verkefnaumsóknum
3. auglýsing 2010 í gangi
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar auglýsir eftir verkefnum til að taka þátt í. Umsóknarfresturinn rennur út 22. september.
16:03 26. ág. 2010   AFE
Verkefnastjórnun — leiðtogaþjálfun
Námið byggir á að efla fjóra megin færniþætti nemenda: Stefnumótunarfærni, leiðtoga­færni, skipulagsfærni og samskiptafærni. Námið spannar tvö misseri; unnið er með færniþættina yfir allan námstímann og áhersla er á að kenna nemendum hagnýtar aðferðir og þjálfa þá í notkun þeirra. Mikill hluti námsreynslunnar á sér stað í kennslustofunni í fjölbreyttri vinnu og skemmtilegum leik.
14:26 20. ág. 2010   AFE
Brautargengi á Akureyri hjá IMPRU
Námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmyndum í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki.
15:11 19. ág. 2010   AFE
Áfangaskýrsla um þekkingarsetur á Íslandi
Starfshópur mennta- og menningarmálaráðherra um þekkingarsetur á Íslandi hefur skilað áfangaskýrslu. Skýrslan tekur til 189 setra um land allt og sýnir að þekkingarstarfsemi á landsbyggðinni er margbrotin og einkennist af smáum en fjölbreyttum einingum.
18:01 04. ág. 2010   AFE
Ráðstefna í Stokkhólmi 24.-25. ágúst
Hér má sjá dagskrá lokaráðstefnu í rannsóknaverkefninu REKENE sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar (AFE) og RHA – Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri hafa tekið þátt í fyrir Íslands hönd frá árinu 2007.
10:35 28. jún. 2010   AFE
Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar var haldin miðvikudaginn 23. júní á Hótel Natur á Svalbarðsströnd.
12:42 24. jún. 2010   AFE
Úthlutun úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar
3 verkefni hljóta stuðning Önnur úthlutun ársins úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar 2008-2010 fór fram á aðalfundi AFE í dag. Sem fyrr var mikil ásókn eftir verkefnaaðild Vaxtarsamnings Eyjafjarðar en alls bárust 14 umsóknir og var óskað samtals eftir ríflega 22,5 milljónum króna. Vaxtarsamningurinn samþykkti að þessu sinni þátttöku í 3 verkefnum og ver til þeirra samtals 4.500.000 kr.
13:21 22. jún. 2010   AFE
Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
verður á morgun 23. júní á Hótel Natur Svalbarðsstrandahreppi kl 15:00. Sveitarstjórnarmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta á fundinn og taka virkan þátt í umræðum um sameiginleg málefni og mótun stefnu félagsins til framtíðar.
10:51 14. jún. 2010   AFE
Ekki gert ráð fyrir Svínavatnsleið (Húnavallaleið) í auglýstum tillögum að aðalskipulagi Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps
Allir geta gert athugasemd
Ekki er gert ráð fyrir einni arðsömustu vegastyttingu Íslands í aðalskipulagi tveggja sveitarfélaga sem leiðin myndi liggja um. Allt áhugafólk um lækkun flutningskostnaðar og skemmri aksturstíma er hvatt til að gera athugasemdir.
16:17 10. jún. 2010   AFE
Fyrirtæki í leikjaþróun á Sprotasetrið
aGame Comany setur upp starfsstöð á Akureyri
Tölvuleikjaiðnaður er mjög vaxandi atvinnugrein og er starfsemin óháð öllum hefðbundnum landamærum. Vinsælir tölvuleikir hala inn meiri tekjur en stærstu bíómyndir. Fyrirtækið aGame Company mun á næstunni setja upp skrifstofu á Akureyri.
14:57 25. maí 2010   AFE
Vaxey óskar eftir verkefnaumsóknum
2. auglýsing 2010 í gangi.
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar auglýsir eftir verkefnum til að taka þátt í. Umsóknarfresturinn rennur út 1. júní.
13:43 10. maí 2010   AFE
Akureyri -Orkusamfélag norðursins-
Miðvikudagur 12. maí 2010 kl: 13:00-17:00
Akureyrarstofa, Grasrót-Iðngarðar og Vinnumálastofnun boða átak til eflingar atvinnulífsins. Átakið hefst með ráðstefnu í Ketilhúsinu um atvinnulíf á Akureyri.
15:06 28. apr. 2010   AFE
Ný Samtök stofnuð á Akureyri
Fulltrúar rekstraraðila á Akureyri héldu fund á Greifanum 28. apríl 2010 þar sem stofnuð voru Samtök atvinnurekenda á Akureyri. Það voru um 70 fulltrúar frá fyrirtækjum sem mættu á fundinn. Tilgangur samtakanna er að gæta hagsmuna félaganna og vera vettvangur fyrir umræður, tengslanet og nýsköpun á svæðinu.
16:29 27. apr. 2010   AFE
Stofnfundur samtaka atvinnurekenda á Akureyri
Dagskrá fundar Samtaka atvinnurekenda á Akureyri miðvikudaginnn 28 apríl kl 12:00 á efri hæð Greifans
11:05 25. feb. 2010   AFE
Ályktun um styttingu Hringvegar
Skorað á yfirvöld og hlutaðeigandi sveitarstjórnir
Fjölsóttur fundur um vegamál samþykkti í morgun meðfylgjandi ályktun um styttingu Hringvegar:
10:48 25. feb. 2010   AFE
9 verkefni hljóta stuðning Vaxtarsamnings Eyjafjarðar
7,2 milljónum úthlutað í fyrstu úthlutun ársins
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar úthlutaði í vikunni þátttökuframlögum úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar 2008-2010. Er þetta fyrsta úthlutun af þremur á þessu ári. Sem fyrr var mikil ásókn eftir verkefnaaðild Vaxtarsamnings Eyjafjarðar en alls bárust 27 umsóknir og var óskað samtals eftir ríflega 57 milljónum króna. Vaxtarsamningurinn samþykkti að þessu sinni þátttöku í 9 verkefnum og ver til þeirra samtals 7.200.000 kr.
15:26 24. feb. 2010   AFE
Styttri leið - Hvað er í vegi?
opinn fundur á Hótel KEA
AFE boðar til opins málfundar um styttingu leiða milli Norðurlands og höfuðborgarsvæðisins. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 8:30-9:30.
13:26 19. feb. 2010   AFE
Úthlutun úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar
Mikil aðsókn í stuðning frá Vaxey
Stjórn AFE fjallaði í vikunni um umsóknir sem bárust vegna 1. úthlutunar Vaxey á þessu ári. Alls bárust 27 umsóknir þar sem óskað var eftir ríflega 57 milljónum króna. Formlega verður tilkynnt um hvaða verkefni hljóta stuðning fimmtudaginn 25. mars n.k.
15:43 18. feb. 2010   AFE
NORA-styrkir, næsti frestur 8. mars
.
Norræna Atlantssamstarfið, NORA, úthlutar verkefnastyrkjum tvisvar á ári. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2010.
13:03 16. feb. 2010   AFE
Iðnaðarráðuneytið auglýsir eftir fyrirtækjum til þátttöku í ráðstefnunni
Ferðastyrkur í boði til allt að 10 fyrirtækja
Ráðstefna þessi, sem nú verður haldin í 12. sinn, er helsta markaðstorg Noregs á sviði markaðssetningar, auglýsinga og margmiðlunar. Áhersla er lögð á að kynna notkun nýjustu tækni margmiðlunar svo og stefnu og strauma á sviði kynningar og markaðssetningar. Í ár er lögð sérstök áhersla á fjárfestingar í nýsköpun og grænni atvinnustarfsemi á eins dags ráðstefnu í tengslum við Gulltaggen.
   
 
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - Skipagata 9 - 3. hæð - 600 Akureyri
Sími: 460 5700 - Fax: 460 5709 - Netfang: afe@afe.is - Heimasíða: www.afe.is