Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
Það er komin SPAM-sía á bloggið. Núna geta róbótar ekki dælt inn efni nema kunna eitthvað í íslensku og stærðfræði.

 

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar E-mailE-mail  
9 verkefni hljóta stuðning Vaxtarsamnings Eyjafjarðar
7,2 milljónum úthlutað í fyrstu úthlutun ársins

Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar úthlutaði í vikunni þátttökuframlögum úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar 2008-2010. Er þetta fyrsta úthlutun af þremur á þessu ári. Sem fyrr var mikil ásókn eftir verkefnaaðild Vaxtarsamnings Eyjafjarðar en alls bárust 27 umsóknir og var óskað samtals eftir ríflega 57 milljónum króna. Vaxtarsamningurinn samþykkti að þessu sinni þátttöku í 9 verkefnum og ver til þeirra samtals 7.200.000 kr.

 

Þau verkefni sem Vaxtarsamningurinn samþykkti að taka þátt í eru:

 

Umsækjendur

 

Verkefni

 Upphæð

Svifvængjasetur Norðurlands, Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic ofl.

 

Námskeiðahald og ferðaþjónusta á Norðurlandi - Paragliding

      1.000.000    

Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi, Iceland Express, Icelandair, Flugfélag Íslands, AFE, Ferðamálastofa, Höldur, SBA, Hótel KEA, Bergmenn Mountain Guides.

 

Markaðssetning á Norðurlandi í USA, Englandi og Skandinavíu.

      2..000.000    

Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi, Iceland Express, AFE, Ferðamálastofa, Reasons 2Go (DK), Discover The World UK LTD.

 

Markaðsátak í Bretlandi og Danmörku í tengslum við beint flug til Akureyrar

      1.000.000    

Bátaferðir ehf, Ektafiskur ehf, Norðurströnd ehf, O Jakobsson ehf, Njáll ehf, Friðfinnur ÍS 105 rhf, Gústi Bjarna ehf, Bjarmi sf, Vottunarstofan Tún, Matís.

 

Fá vottun (MSC og lífrænt) á þorsk og ýsu sem veidd er á Norðurlandi af dagróðra línu- eða færabátum.

         800.000

Ragnhildur Hjaltadóttir, Gallerí Sól – Gullsól, Gistiheimilið Básar, Veitingastaðurinn Krían, Kvenfélagið Baugur, Minjasafnið, Akureyrarstofa.

 

Áfangastaður við Heimskautsbaug – þróun ferðaþjónustu í Grímsey

         500.000

Fjallabrauð ehf, Taktík auglýsingastofa, Fjallabyggð ofl.

 

Framleiðsla, hönnun umbúða og sala á handskornu laufabrauði í gjafapakkningum.

         500.000

Skiltagerð Norðurlands, Elemy Spa

 

Smíði og sala á nuddsteinum úr íslensku grjóti.

 

         500.000

Saga travel, Ferðamálafélag Hríseyjar, Friðrik V - veitingahús

 

Sala og markaðssetning á sælkeraferð um Eyjafjörð á heilsársgrundvelli fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn.

         500.000

Bergmenn Mountain Guides, Bátaferðir ehf, Dalvíkurbyggð ofl.

 

Skapa aðstöðu og aðstoð fyrir sprota og frumkvöðla í Dalvíkurbyggð.

         400.000    

 

 

Samtals

      7.200.000    

 
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - Skipagata 9 - 3. hæð - 600 Akureyri
Sími: 460 5700 - Fax: 460 5709 - Netfang: afe@afe.is - Heimasíða: www.afe.is