04. febrúar 2010
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar í samvinnu við Útflutningsráð Íslands munu bjóða upp á námskeið í markaðssetningu á netinu byggt á samnefndri bók sem var að koma út. Kennarar eru Guðmundur Arnar, markaðsstjóri hjá Icelandair og Kristján Már hjá Nordic eMarketing.
Um hvað snýst námskeiðið?
Farið verður yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt með áherslu á ferðaþjónustu og hvernig samskiptaleiðir netsins geta skapað miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi.
Kennslan byggir á bókinni "Markaðssetning á netinu" en bókin er innifalin í þátttökugjaldi námskeiðsins.
Námskeiðið stendur frá kl. 16:00 - 20:00 þann 22. febrúar í húsnæði Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar Skipagötu 9, 3 hæð.
Verð fyrir námskeið og bók er 18.500kr.
Skráning er hjá Online.is á netfangið inga@online.is eða í síma 540 9505 fyrir 19. febrúar.
Helstu þættir:
- Netið, breytingar og tækifæri
- Staðan í dag
- Vefborðar
- Leitarvélar
- Samfélagsmiðlar
- Kaffi, smá pása og spjall
- Tölvupóstar
- Vefgreiningartól
Um bókina sem er innifalin í námskeiðinu:
Bókin " Markaðssetning á netinu" hefur það að leiðarljósi að vera hagnýt verkfærakista fyrir íslenskt markaðsfólk sem er eða vill byrja að nota netið í sínu markaðsstarfi. Í henni er fjallað um allar helstu samskiptaleiðir netsins.
Bókin er jafnframt full af nýjum innlendum og erlendum rannsóknum um notkun fólks á netinu og hvernig ná má hámarksárangri. Ennfremur eru í bókinni fjölmargar íslenskar dæmisögur og tölur sem íslenskt markaðsfólk getur nýtt sér í daglegu störfum.
Í dag er allt markaðsstarf meira og minna unnið með netið í huga. Bókin kynnir nýjar áður óbirtar rannsóknir sem sýna hversu langt Íslendingar hafa náð í notkun netsins. Tækifæri íslenskra fyrirtækja eru því fjölmörg.
Eftir námskeiðið og lestur bókarinnar ætti fólk að vera mun betur upplýst um:
·
...þær breytingar sem orðið hafa á hegðun neytenda
·
...hið breytta umhverfi sem fyrirtæki og vörumerki starfa í
·
...þau fjölmörgu tækifæri sem eru á netinu í dag og hægt er að nýta með litlum tilkostnaði
·
...hvernig ná má hámarksárangri með vefborðum
·
...hvernig ná má hámarksárangri með leitarvélum
·
...hvernig ná má hámarksárangri með samfélagsmiðlum (Facebook o.s.frv.)
·
...hvernig ná má hámarksárangri með tölvupóstum
·
...hvernig netið kemur inn í hefðbundnar birtingaáætlanir
·
...á hvern hátt vefgreiningartól virka og hvernig best er að nota þau
·
...og fleira og fleira!
Fyrirlesarar og höfundar bókarinnar "Markaðssetning á netinu"
Guðmundur Arnar Guðmundsson er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur ritað fjölda greina um viðskipti og markaðsmál í tímarit og blöð á Íslandi og situr í stjórn ÍMARK, félags markaðsfólks á Íslandi. Hann hóf störf við markaðsmál hjá 365 ehf en flutti til Englands 2006 og starfaði þar hjá Icelandair sem markaðsstjóri breska sölusvæðisins. Nú starfar Guðmundur Arnar í markaðsdeild Icelandair á Íslandi og fer fyrir markaðsstarfinu á Íslandi, hann sér um markaðsrannsóknir fyrirtækisins ásamt því að koma að stefnumótandi uppbyggingu vörumerkisins Icelandair.
Kristján Már Hauksson hefur komið víða við hann lærði rafeindavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík, kerfisfræði við Tölvu og verkfræðiskólann og er með internet markaðsfræðigráðu frá University of British Columbia. Hann stofnaði Nordic eMarketing og starfar þar sem sviðsstjóri net- markaðssetningar. Þar sérhæfir hann sig í leitarvélamarkaðssetningu og net-almannatengslum (ePR - Online PR). Kristján Már stofnaði íslenska SEO/SEM samfélagið og skrifar reglulega á Multilingualsearch.com. Kristján hefur unnið við netlausnir síðan 1996 og leitarvélamarkaðssetningu frá 1999. Hann er vinsæll fyrirlesari um þessa nýju miðla jafnt innanlands sem utan og hefur haldið fjölmörg námskeið.